Barátta

Alfons Finnsson

Barátta

Kaupa Í körfu

Fjölbreytni mannlífsins kemur vel fram á ljósmyndum fréttaritara Morgunblaðsins á landsbyggðinni sem birtast daglega í blaðinu. Þær eru eins konar spegill þjóðarinnar. Lokið er samkeppni um bestu ljósmyndir fréttaritara frá árunum 2005 og 2006 sem Morgunblaðið og Okkar menn, félag fréttaritaranna, efndu til í byrjun þessa árs. Mörg hundruð myndir bárust dómnefnd. Úrslit voru kynnt og verðlaun afhent á aðalfundi Okkar manna sem haldinn var í Morgunblaðshúsinu í Reykjavík í gær. Dómnefnd valdi "Skýjahöll", mynd Jónasar Erlendssonar, fréttaritara Morgunblaðsins í Mýrdal, sem mynd keppninnar. Einnig voru veitt verðlaun í átta keppnisflokkum. Verðlaunamyndirnar og valdar myndir úr keppninni hafa verið settar upp á sýningu í verslunarmiðstöðinni Smáralind, neðri hæð. Myndirnar verða þar til 4. apríl næstkomandi og verða síðan settar upp á nokkrum stöðum á landsbyggðinni. Spaug: Viðurkenning BARÁTTA Einar Hjörleifsson, markmaður Víkings í Ólafsvík, var í miklu stuði í leik við Þrótt í fyrstu deild Íslandsmótsins sumarið 2006 og þurfti oft að taka vel á. Alfons Finnsson náði mynd af honum við óvenjulegar aðstæður í viðureign við sóknarmann Þróttar. Ólsarar sigruðu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar