Einn í bíl

Guðrún Vala Elísdóttir

Einn í bíl

Kaupa Í körfu

Fjölbreytni mannlífsins kemur vel fram á ljósmyndum fréttaritara Morgunblaðsins á landsbyggðinni sem birtast daglega í blaðinu. Þær eru eins konar spegill þjóðarinnar. Lokið er samkeppni um bestu ljósmyndir fréttaritara frá árunum 2005 og 2006 sem Morgunblaðið og Okkar menn, félag fréttaritaranna, efndu til í byrjun þessa árs. Mörg hundruð myndir bárust dómnefnd. Úrslit voru kynnt og verðlaun afhent á aðalfundi Okkar manna sem haldinn var í Morgunblaðshúsinu í Reykjavík í gær. Dómnefnd valdi "Skýjahöll", mynd Jónasar Erlendssonar, fréttaritara Morgunblaðsins í Mýrdal, sem mynd keppninnar. Einnig voru veitt verðlaun í átta keppnisflokkum. Verðlaunamyndirnar og valdar myndir úr keppninni hafa verið settar upp á sýningu í verslunarmiðstöðinni Smáralind, neðri hæð. Myndirnar verða þar til 4. apríl næstkomandi og verða síðan settar upp á nokkrum stöðum á landsbyggðinni. Opinn flokkur: Viðurkenning UNGUR BÍLSTJÓRI Strákunum kippir í kynið þegar þeir sjá bíla. Elís Dofri G. Gylfason hafði gaman af að leika sér í gömlum vörubíl í Straumfirði á Mýrum og móðir hans, Guðrún Vala Elísdóttir, myndaði tilþrifin.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar