Sigurhringurinn

Reynir Sveinsson

Sigurhringurinn

Kaupa Í körfu

Fjölbreytni mannlífsins kemur vel fram á ljósmyndum fréttaritara Morgunblaðsins á landsbyggðinni sem birtast daglega í blaðinu. Þær eru eins konar spegill þjóðarinnar. Lokið er samkeppni um bestu ljósmyndir fréttaritara frá árunum 2005 og 2006 sem Morgunblaðið og Okkar menn, félag fréttaritaranna, efndu til í byrjun þessa árs. Mörg hundruð myndir bárust dómnefnd. Úrslit voru kynnt og verðlaun afhent á aðalfundi Okkar manna sem haldinn var í Morgunblaðshúsinu í Reykjavík í gær. Dómnefnd valdi "Skýjahöll", mynd Jónasar Erlendssonar, fréttaritara Morgunblaðsins í Mýrdal, sem mynd keppninnar. Einnig voru veitt verðlaun í átta keppnisflokkum. Verðlaunamyndirnar og valdar myndir úr keppninni hafa verið settar upp á sýningu í verslunarmiðstöðinni Smáralind, neðri hæð. Myndirnar verða þar til 4. apríl næstkomandi og verða síðan settar upp á nokkrum stöðum á landsbyggðinni. MYNDATEXTI Sigurhringurinn Formaður knattspyrnudeildar Reynis í Sandgerði hét því í upphafi leiktímabils annarrar deildar sumarið 2006 að ef liðið kæmist upp í fyrstu deild myndi hann hlaupa nakinn umhverfis völlinn. Reynir komst upp og formaðurinn stóð við heit sitt, fór reyndar á mótorfáki til þess að vera fljótari. Reynir Sveinsson fréttaritari var á vellinum og vann verðlaun fyrir spaugilegustu myndina í keppni fréttaritaranna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar