Á leið í dömuboð

Sigurður Jónsson

Á leið í dömuboð

Kaupa Í körfu

Fjölbreytni mannlífsins kemur vel fram á ljósmyndum fréttaritara Morgunblaðsins á landsbyggðinni sem birtast daglega í blaðinu. Þær eru eins konar spegill þjóðarinnar. Lokið er samkeppni um bestu ljósmyndir fréttaritara frá árunum 2005 og 2006 sem Morgunblaðið og Okkar menn, félag fréttaritaranna, efndu til í byrjun þessa árs. Mörg hundruð myndir bárust dómnefnd. Úrslit voru kynnt og verðlaun afhent á aðalfundi Okkar manna sem haldinn var í Morgunblaðshúsinu í Reykjavík í gær. Dómnefnd valdi "Skýjahöll", mynd Jónasar Erlendssonar, fréttaritara Morgunblaðsins í Mýrdal, sem mynd keppninnar. Einnig voru veitt verðlaun í átta keppnisflokkum. Verðlaunamyndirnar og valdar myndir úr keppninni hafa verið settar upp á sýningu í verslunarmiðstöðinni Smáralind, neðri hæð. Myndirnar verða þar til 4. apríl næstkomandi og verða síðan settar upp á nokkrum stöðum á landsbyggðinni. Spaug: Viðurkenning Á LEIÐ Í DÖMUBOÐ Dömuboðin á Selfossi kalla á glæsilegan fatnað og ekki skemmir fyrir þegar höfuðbúnaðurinn kemur á óvart. Sigurður Jónsson myndaði frúna í Fossmúla, Jónu Ingvarsdóttur, á leið í slíkt boð en hún skartaði uppstoppuðum íslenskum hana sem höfuðfati

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar