Óléttir íþróttanemar

Sigurður Jónsson

Óléttir íþróttanemar

Kaupa Í körfu

Ætli megi ekki bara segja að hér sé loftið bæði heilnæmt og vatnið afskaplega gott," segir Anna María Björnsdóttir frá Siglufirði sem nú stundar nám við Íþróttakennaraskólann á Laugarvatni og ber sitt fyrsta barn undir belti. Anna María er á öðru ári af þremur í náminu, en í þessum öðrum árgangi hafa tilkynningar um óléttu verið nokkuð tíðar að undanförnu því auk Önnu Maríu hafa fjórar konur til viðbótar, allar í sama árgangi, lagt fram svipaðar tilkynningar, þar af gengur ein með tvíbura. Samkvæmt útreikningum Daglegs lífs er því von á sex nýburum í árganginn á næstunni. MYNDATEXTI: Óléttir íþróttanemar - Margrét Elín Egilsdóttir, Hrefna Dagbjartsdóttir, Helga Guðrún Magnúsdóttir, Eygló Hansdóttir og Anna María Björnsdóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar