Ljósanótt, setning

Helgi Bjarnason

Ljósanótt, setning

Kaupa Í körfu

Reykjanesbær | Nemendur allra grunnskóla Reykjanesbæjar, alls liðlega 2.500 börn, gengu í skrúðgöngum til Myllubakkaskóla í gær, þar sem fjölskyldu- og menningarhátíðin Ljósanótt var sett. Slepptu þau á þriðja þúsund blöðrum í ýmsum litum til marks um fjölbreytileika mannlífsins í bænum. Árni Sigfússon bæjarstjóri setti Ljósanótt, að loknu ávarpi Steinþórs Jónssonar formanns undirbúningsnefndar. Þá skemmti tónlistarfólk gestum. Ásmundur Valgeirsson söng fyrsta Ljósahátíðarlagið og Bríet Sunna Valdimarsdóttir, IDOL-stjarna Suðurnesjamanna, söng og sprellaði með gestum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar