Ballerínur

Sverrir Vilhelmsson

Ballerínur

Kaupa Í körfu

MEÐ blóm í hári og bros á vör dönsuðu tugir ungra ballerína um svið Borgarleikhússins í gær. Með ýmsum svipbrigðum og tignarlegum handahreyfingum túlkuðu þær dansinn og vöktu tilþrifin mikla kátínu meðal viðstaddra. Hér eru á ferðinni ungir dansarar sem tóku þátt í árlegri nemendasýningu Ballettskóla Eddu Scheving.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar