Bátarnir skveraðir

Hafþór Hreiðarsson

Bátarnir skveraðir

Kaupa Í körfu

Húsavík | Bátar hvalaskoðunarfyrirtækisins Gentle Giants á Húsavík standa nú uppi á landi þar sem verið er að skvera þá fyrir hvalaskoðunina á komandi sumri. "Við ætlum að byrja fyrr í ár en áður, eða 1. maí nk., þannig að við eru fyrr á ferðinni við undirbúning bátanna en áður. Ætlum að hafa tímann fyrir okkur," segir Stefán Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gentle Giants, og bætir við að honum finnist ýmislegt benda til þess að töluvert verði af hval á ferðinni í Skjálfanda og hann verði snemma á ferðinni í ár. MYNDATEXTI Vertíðin undirbúin Aþena og Faldur eru í skverun á hafnarkantinum þessa dagana. Aðalsteinn Ólafsson hjá Gentle Giants háþrýstiþvær Aþenu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar