Emiliano Monaco

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Emiliano Monaco

Kaupa Í körfu

Lesarinn Hvers sá sem hyggst lesa mig ætti að vita að ég er ekki íþróttablaðamaður. Ég kenni hugmyndasögu í bókmenntadeild Háskólans í Rúðuborg. Ég er sagnfræðingur og heimspekingur, ef svo má segja." Með þessum orðum varar A. Philonenko lesendur sína við á kápu bókarinnar Histoire de la boxe (Criterion, Paris 1991; einnig til í ítalskri þýðingu: Il Nuovo Melangelo, Genova 1997). Hið sama á við um mig: Ég er ekki áhugamaður um íþróttir, og alls ekki box. Ég er kvikmyndagerðarmaður og kvikmyndasagnfræðingur en sem listamaður hef ég alltaf haft áhuga á skörun ólíkra sviða. Ég keypti þessa bók á bókamarkaði í Róm ásamt bók eftir Derrida. Ég fékk góðan afslátt hjá afgreiðslumanninum sem þótti þetta skrýtið val. Bókin fjallar um sögu hnefaleika frá Rocky Marciano til Virgils, eða allt frá Hómer til Muhammed Ali þar sem "list hnefaleikanna lýkur". Philonenko rifjar upp sögur úr hringnum og úr einkalífi þekktra hnefaleikamanna. Hann segir frá uppgangi hnefaleikanna og hnignun þeirra sem almenningsíþróttar og færir rök fyrir því hvernig hún er heimspekilegur hluti af daglegu lífi okkar. Emiliano Monaco kvikmyndagerðarmaður.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar