Korn og kýr

Sigurður Sigmundsson

Korn og kýr

Kaupa Í körfu

Hrunamannahreppur | Hin góða tíð sem verið hefur í haust hefur verið kúabændum góð búbót. Er það mikil breyting frá því sem var í fyrrahaust þegar framleiðslan var lítil. Enn er góður vöxtur í grænfóðri og bændur hafa getað sett kýr sínar út og beitt á daginn. Það gerir meðal annars bóndinn í Langholtskoti þar sem myndin var tekin. Mjólkurframleiðslan í landinu tók kipp í síðustu viku, náði 2,1 milljón lítra sem er 18% meira en í sömu viku fyrir ári, að því er fram kemur í bráðabirgðatölum Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar