Ný gangbrautarljós við Háaleitisbraut

Ný gangbrautarljós við Háaleitisbraut

Kaupa Í körfu

NÝ gangbrautarljós hafa verið sett upp á Háaleitisbraut skammt fyrir norðan verslunarmiðstöðina Miðbæ. Ljósin eru af nýrri tegund umferðarljósa sem skynja vegfarendur sem fara yfir á ljósunum og láta græna ljósið loga þar til þeir eru komnir yfir götuna. Þetta eykur bæði öryggi gangandi vegfarenda og stöðvar ekki bílaumferð lengur en þörf er á. Þetta eru fjórðu gangbrautarljósin þessarar gerðar, en fyrir eru ljós við Hamrahlíð, á Snorrabraut við Grettisgötu og á Sundlaugavegi við Gullteig.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar