Smiðjan í Hólmi

Ragnar Axelsson

Smiðjan í Hólmi

Kaupa Í körfu

Sverrir Valdimarsson hefur búið í Hólmi í Landbroti lungann úr ævinni og er ekkert á förum úr því sem komið er. Hann er einn á bænum; foreldrar hans eru dánir og féð farið, en hann situr áfram og Hólmur er honum allt. Þar gætir hann merkra minja um fyrsta verknámsskólann, sem faðir hans stýrði, og smiðju sem er óbreytt með öllu frá því smiðurinn gekk þar út síðast 1938. MYNDATEXTI: Síðasta túrbínan - Bjarni Runólfsson setti upp 116 vatnsaflsstöðvar og smíðaði sjálfur túrbínur í þær flestar. Þremur dögum fyrir andlát hans var sú nýjasta sett niður norðan við Hólmsbæinn og þar þjónar hún bænum enn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar