Leikskóli og tónskóli

Albert Kemp

Leikskóli og tónskóli

Kaupa Í körfu

Fáskrúðsfjörður | Lokið er byggingu 770 fermetra húss fyrir starfsemi leikskóla og tónskóla á Fáskrúðsfirði og vígsla þess áformuð um næstu mánaðamót. Húsið er teiknað af Orra Árnasyni hjá teiknistofunni Zeppilín í Reykjavík og byggingameistari hússins var Þorsteinn Bjarnason hjá Tré og steypu á Fáskrúðsfirði. Verkið hófst 1. desember 2005 og lauk 30. mars 2007 eða á þeim tíma sem áætlaður var. MYNDATEXTI: Tilbúið - Fyrri áfangi viðbyggingar við grunnskóla Fáskrúðsfjarðar mun hýsa leikskóla og tónlistarskóla.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar