Alþingishúsið

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Alþingishúsið

Kaupa Í körfu

FYRIR dyrum standa framkvæmdir á Alþingishúsinu og er stefnt að því að þeim ljúki áður en sumarþing kemur saman í lok maí eða byrjun júní, að sögn Helga Bernódussonar, skrifstofustjóra Alþingis. Skipta á um allar skífur á þaki hússins og ljúka fúguviðgerð á húsinu en búið er að ganga frá þremur hliðum og aðeins norðurhliðin eftir. Helgi segir að hagræðing sé að því að vinna við báða áfangana á sama tíma og þannig megi til dæmis samnýta vinnupalla. Framkvæmdirnar taki nokkrar vikur en veður geti haft áhrif á þær. MYNDATEXTI Búið er að byrgja Alþingi inni

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar