Sjávarkjallarinn

Sverrir Vilhelmsson

Sjávarkjallarinn

Kaupa Í körfu

Wikram Garg er yfirmatreiðslumeistari á veitingastaðnum Inde Bleu í Washington. Þar býður hann upp á spennandi og fágaðan franskan mat með áhrifum af heillandi bragðheimi Indlands. Wikram lærði í besta matreiðsluskóla Indlands og vann eftir það á nokkrum 5 stjörnu hótelum og veitingastöðum á Indlandi þar sem hann æfðist í að laga fínustu frönsku matargerð að indverskum bragðlaukum. Hann vann einnig í Dubai, Jómfrúreyjum og Bangalore. Hann stjórnaði fimm glæsilegum veitingahúsum og fann sér jafnframt tíma til að skrifa ásamt félaga sínum The Asian Menu Planner Cookbook þar sem áherslan er áað blanda saman klassískum indverskum réttum og vestrænni matreiðslu. Wikram gefur einnig mat til fátækra. "Þetta er mjög flottur matseðill," segir Hrefna Rósa Jóhannsdóttir Sætran, yfirmatreiðslumeistari Sjávarkjallarans. "Það verður mjög spennandi að fá Wikram, hann er fínn náungi svo ætlar að hann að koma með fullt af indverskum þurrkryddum sem hann var að kaupa í Indlandi."

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar