KR - Njarðvík

Sverrir Vilhelmsson

KR - Njarðvík

Kaupa Í körfu

BANDARÍSKI leikmaðurinn Tyson Patterson, leikmaður Íslandsmeistaraliðs KR í körfuknattleik, var valinn besti leikmaður úrslitakeppninnar en hann tileinkaði liðinu einstaklingsverðlaunin sem hann fékk afhent í leikslok. Tyson var rólegur og afslappaður í leikslok þrátt fyrir 83:81-sigur KR gegn Njarðvíkingum sem höfðu titil að verja í Iceland Express deildinni. Margur er knár þótt hann sér smár er klisja sem hefur eflaust oft verið notuð um bakvörðinn sem sýndi oft snilldartilþrif í úrslitakeppninni MYNDATEXTI Bestur í úrslitakeppninni Tyson Patterson, leikstjórnandinn lágvaxni hjá KR-ingum, var útnefndur besti leikmaður úrslitakeppninnar eftir að KR-ingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik í gærkvöld. Patterson hyggst leika áfram með Vesturbæjarliðinu næsta vetur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar