Stórbruni í miðborginni

Sverrir Vilhelmsson

Stórbruni í miðborginni

Kaupa Í körfu

RÚMLEGA 200 ára gamalt hús, Austurstræti 22, gjöreyðilagðist í stórbruna í miðborg Reykjavíkur í gær og Lækjargata 2 sem var reist fyrir meira en 150 árum stórskemmdist. Saman mynduðu þessi hús eina elstu varðveittu götumynd í Reykjavík og eitt helsta kennileiti borgarinnar um langa hríð. "Mér finnst bæði dapurt og sárt að þurfa að upplifa brunann og átökin við eldinn og sjá smám saman þessar afleiðingar," sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri í gær og mælti þar líklega fyrir munn flestra. MYNDATEXTI: Stór sár - Eyðileggingin blasir við þegar slökkviliðið hefur loks ráðið niðurlögum eldsins. Eldurinn í Austurstræti 22 var erfiðari viðureignar og að lokum varð að rífa þakið af.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar