Stórbruni í miðborginni

Sverrir Vilhelmsson

Stórbruni í miðborginni

Kaupa Í körfu

ENGAN sakaði í brunanum sem kom upp í miðbæ Reykjavíkur í gærdag en þó nokkrir voru við störf í því húsnæði sem síðar varð alelda. Meðal annars var unnið að endurbótum á veitingastaðnum Café Óperu sem opna átti á nýjan leik í næsta mánuði. Bjarni Sigurðsson kokkur og Patrekur Sigurvinsson þjónn á Café Óperu voru inni á staðnum þegar smiður sem þar var við vinnu kallaði í þá og lét vita að reykur væri í húsinu. MYNDATEXTI: Ónýt - Þessi klukka á Cafe Óperu segir ekki til um tímann framar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar