Sumardagurinn fyrsti í Hafnarfirði

Brynjar Gauti

Sumardagurinn fyrsti í Hafnarfirði

Kaupa Í körfu

SUMARDAGINN fyrsta er gjarnan margt sér til gamans gert og er keppt í ótrúlegustu þrautum. Í Hafnarfirði var til dæmis boðið upp á goskassaklifur. Sumum reyndist erfitt að halda jafnvæginu ofan á einum goskassa en þessum unga pilti fataðist ekki flugið fyrr en á fjórtánda kassa. Öryggislínan sá til þess að hann var ekki í hættu staddur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar