Innlit

Innlit

Kaupa Í körfu

Á Íslandi keppast margir við að byggja sér hallir og búa í sem flestum fermetrum. En ekki gera allir kröfur um slíka mannabústaði. Kristín Heiða Kristinsdóttir heimsótti unga konu sem unir hag sínum ágætlega þar sem hún býr í 30 fermetra bílskúr. Námsmenn hafa margir hverjir ekki úr miklu að moða og þurfa að tileinka sér nægjusemi bæði í almennri neyslu og húsnæði. Hin þýska Claudia Overesch stundar meistaranám við Háskóla Íslands í þýðingarfræðum og vinnur með skólanum því hún fær ekki námslán. Hún leigir 30 fermetra bílskúr á Miklubrautinni sem hefur verið innréttaður sem íbúð og henni hefur reynst létt að aðlagast fimm prósent gólfhalla og takmörkuðu plássi. Hún hefur komið sér vel fyrir í þessu litla rými sem er litríkt og skemmtilegt. MYNDATEXTI Ódýr skreyting Innan á útidyrahurðina hefur hún safnað bakhliðum af mjólkurfernum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar