Borgarstjórn fundar með ungmennum

Brynjar Gauti

Borgarstjórn fundar með ungmennum

Kaupa Í körfu

LANGT er um liðið síðan jafnmargir áhorfendur sáust á fundi í Ráðhúsi Reykjavíkur og í gærdag þegar fulltrúar úr Reykjavíkurráði ungmenna fluttu tillögur sínar fyrir borgarstjóra og borgarfulltrúa. Þá þarf langt að leita til að finna jafnmikla jákvæðni og ríkti í sal borgarstjórnar í gær. Voru borgarfulltrúar einnig sammála um að sjaldan hefði jafnvel tekist til og var í lok fundar samþykkt að vísa öllum tillögum áfram í borgarkerfinu. MYNDATEXTI: Í borgarstjórn - Gunnar Ingi Magnússon, fulltrúi Ungmennaráðs Vesturbæjar, gefur Loga Stefánssyni góð ráð en Logi flutti tillögu um svonefnda "graffara". Við hlið þeirra situr Björn Ingi Hrafnsson og í bakgrunni ræða saman Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri og Hanna Birna Kristjánsdóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar