Wilson Muuga dreginn af strandstað

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Wilson Muuga dreginn af strandstað

Kaupa Í körfu

JÆJA, maður kemst þá heim að sofa," varð einum björgunarmanni að orði þegar Wilson Muuga losnaði loks af strandstað í gær eftir 4 mánaða strandlegu. Þessi orð endurspegla að sínu leyti vinnuúthald þeirra 10-15 manna sem meira og minna hafa dvalið í eða við skipið undanfarnar vikur til að búa það undir þann hápunkt sem náðist í gær. Skipsflautan drundi rétt um kl. 17:30 og þeir sem biðu með öndina í hálsinum í fjörunni vissu alveg hvað það þýddi. Wilson Muuga var laus! Til að gera þetta mögulegt varð að þétta tanka og lestargólf skipsins og auk þess að létta það eins mikið og mögulegt var. MYNDATEXTI Jónína Bjartmarz

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar