Grænar öskutunnur

Grænar öskutunnur

Kaupa Í körfu

Stefnt að því að nýtt sorphirðukerfi nái til 20% sérbýla í fyrstu Nýtt sorphirðukerfi verður tekið í notkun í Reykjavík um áramót, en þá býðst íbúum í sérbýli (rað-, par-, og einbýlishúsum) að fá grænar öskutunnur, sem losaðar eru á tveggja vikna fresti í stað vikulega eins og nú er. Sorphirðugjöld fyrir grænar tunnur eru helmingi lægri, 4.850 kr.á ári en eru 9.700 fyrir hefðbundnar/svartar tunnur sem áfram verða í notkun í fjölbýlishúsum og í sérbýlum sem ekki óska eftir nýju tunnunum. MYNDATEXTI: Pétur Elínarson, starfsmaður Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkurborgar, við nýju, skærgrænu öskutunnurnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar