Norðmenn skoða aðstæður á Keflavíkurflugvelli

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Norðmenn skoða aðstæður á Keflavíkurflugvelli

Kaupa Í körfu

VÍÐTÆKAR ráðstafanir hafa verið gerðar á þeim tíma sem liðinn er frá því bandarísk stjórnvöld tilkynntu um brottför varnarliðsins sem miða að því að tryggja öryggi og varnir landsins. Viðræður hafa átt sér stað í vetur við Norðmenn, Dani, Breta og Kanadamenn um aukið samstarf á sviði öryggis- og varnarmála, almannavarnir verða endurskipulagðar, sérsveit Ríkislögreglustjóra verður efld og Landhelgisgæslan stórefld svo nokkuð sé nefnt. MYNDATEXTI: Meta aðstöðuna. - Fulltrúar norskra stjórnvalda kynntu sér aðstöðuna á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli í desember sl. Skoðuðu þeir m.a. flugskýli þar sem F-16 orrustuþotur bandaríska flughersins voru áður geymdar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar