Anna Bjarnadóttir eldhugi

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Anna Bjarnadóttir eldhugi

Kaupa Í körfu

Kópavogur | Rótarýklúbbur Kópavogs hefur veitt árlega viðurkenningu klúbbsins, Eldhugann. Að þessu sinni hlaut Anna Bjarnadóttir húsmóðir viðurkenninguna fyrir störf að félags- og mannúðarmálum, en hún er 87 ára. Anna hefur búið í Kópavogi í meira en hálfa öld og tekið þar mjög virkan þátt í félagsstörfum frjálsra félagasamtaka, einkum Kvenfélags Kópavogs og Rauðakrossdeildar Kópavogs. MYNDATEXTI: Viðurkenning - Forseti Rótarýklúbbs Kópavogs, Þórir Ólafsson, og formaður viðurkenningarnefndar, Haukur Hauksson, færa Önnu Bjarnadóttur glerlistaverk eftir Ingu Elínu og blómvönd í tilefni útnefningarinnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar