Fjölbrautaskólinn í Ármúla

Fjölbrautaskólinn í Ármúla

Kaupa Í körfu

NEMENDUR við Fjölbrautaskólann í Ármúla gerðu sér glaðan dag í gær og háðu meðal annars keppni í sápubandí og úðuðu í sig pylsum á árlegri vorhátíð skólans. "Við urðum reyndar að laga dagskrána aðeins að rigningunni og hljómsveitin lék til dæmis innandyra til að koma í veg fyrir skemmdir á hljóðfærum," sagði Rebekka Líf Albertsdóttir, einn skipuleggjenda hátíðarinnar. MYNDATEXTI: Pylsur - Það hefur enginn prófalestur á fastandi maga.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar