B&L frumsýnir nýjan BMW jeppa X5 á Nordica

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

B&L frumsýnir nýjan BMW jeppa X5 á Nordica

Kaupa Í körfu

Menningarkvöld BMW Í tilefni af frumsýningu á nýja BMW X5 sportjeppanum bauð B&L til menningarkvölds BMW á Hótel Nordica á miðvikudaginn var. Umgjörð kvöldsins var vægast sagt glæsileg en þarna mátti til dæmis skoða verk eftir expressjónistann Paul Gauguin. Matreiðslumeistarar VOX lögðu einnig sitt af mörkum með framandi kræsingum.... Tónlist skipaði stóran þátt kvöldsins en margir þjóðþekktir tónlistarmenn stigu þarna á svið. Hjörleifur Valsson fiðlusnillingur mætti með Stradivarius-fiðluna sína og einnig mátti hlýða á tónlist Péturs Ben, Lay Low, Ólafar Arnalds og blússveitarinnar Mood með söngkonuna Þóru Björk í fararbroddi. Á milli atriða komu ungir efnilegir dansarar fram og sýndu listir sínar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar