Leikskólabörn í Austurborg á leið í Borgarleikhúsið

Leikskólabörn í Austurborg á leið í Borgarleikhúsið

Kaupa Í körfu

TÆPLEGA 200 litlir fætur fóru saman á stjá í Háaleitishverfi í Reykjavík í gær þegar nærri 100 börn í leikskólanum Austurborg röltu sem leið lá niður í Borgarleikhús til að horfa á leiksýninguna Stígvélaða köttinn. Krílunum finnst sjálfsagt ekki dónalegt að hafa heilt leikhús í göngufæri frá leikskólanum sínum enda mikil tilbreyting frá amstri hversdagsins að heimsækja svoleiðis menningarstofnun. Það er þó vissara að vera vel skóaður, eins og kötturinn knái í sýningunni, þegar leggja á upp í leiðangra sem þessa. allur textinn

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar