Sálubót

Birkir Fanndal

Sálubót

Kaupa Í körfu

Mývatnssveit | Söngfélagið Sálubót flutti vortónleika í Skjólbrekku í vikunni við góða aðsókn og frábærar undirtektir. Kórinn, sem að mestu er skipaður söngfólki úr Þingeyjarsveit, heldur tónleika á fimm stöðum á NA-landi um þessar mundir og voru þetta þriðju tónleikarnir. Kórinn hefur í mörg ár verið undir stjórn Jaan Alavere sem einnig leikur undir á píanó. Flutningur kórsins á fjölbreyttri efnisskrá var hljómfagur og kröftugur hjá öruggum og einbeittum stjórnanda.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar