Breiðablik - Valur

Breiðablik - Valur

Kaupa Í körfu

KÓPAVOGSVÖLLUR fer seint á vinsældalistann hjá Valsmönnum. Þar hefur Valur ekki lagt Breiðablik að velli frá því 1992 eða í 14 ár og engin breyting varð á því gærkvöld þegar Blikar léku sinn fyrsta leik í efstu deild í fjögur ár. Nýliðarnir skelltu bikarmeisturum Vals, 2:1, og í síðustu átta viðureignum liðanna á Kópavogsvelli hafa Blikar unnið fimm leiki en þrívegis hafa liðin skilið jöfn. MYNDATEXTI Kjartan Sturluson, markvörður Vals, grípur hér inn í eftir eina af fjölmörgum hornspyrnum sem Breiðabliksmenn fengu í gærkvöldi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar