ICE Cup curlingmót á Akureyri

Skapti Hallgrímsson

ICE Cup curlingmót á Akureyri

Kaupa Í körfu

DÖNSKU landsliðsstúlkurnar í liðinu Tårnby Curling Club sigruðu á ICE Cup, alþjóðlegu krullumóti á vegum Krulludeildar Skautafélags Akureyrar, sem fór fram um síðustu helgi. Dönsku stúlkurnar urðu í öðru sæti á heimsmeistaramótinu nýverið. Alls komu fjögur erlend lið til landsins til að keppa á mótinu, tvö frá Bandaríkjunum, eitt frá Lettlandi og svo danska liðið. Koma erlendu liðanna er mikill fengur fyrir krullufólk hér á landi, að sögn mótshaldara. MYNDATEXTI: Snjallir en töpuðu -Leikmenn lettneska krulluliðsins í úrslitaleiknum gegn dönsku landsliðskonunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar