Jean Luc Courcoult

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Jean Luc Courcoult

Kaupa Í körfu

"MÉR þykir þú heldur stressuð, andaðu aðeins að þér og má ekki bjóða þér í glas?" á þessum orðum hóf franski leikstjórinn Jean Luc Courcoult viðtal mitt við sig. Ég afþakkaði glasið en þorði ekki annað en að anda djúpt að mér fyrir þessa staðalímynd franska listamannsins með von um að geta hafið viðtalið. Jean er staddur hér á landi til að setja upp sýningu franska götuleikhússins Royal de Lux sem hann stofnaði sjálfur árið 1979 og er í dag eitt frægasta götuleikhús í heimi. MYNDATEXTI: Sögumaðurinn - Jean Luc Courcoult er leikstjóri, hugmyndasmiður og stofnandi franska risagötuleikhússins Royal de Luxe sem fer um miðbæ Reykjavíkurborgar með söguna um Risessuna og reiða risann á morgun og laugardag.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar