RES

Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson

RES

Kaupa Í körfu

Res Orkuskóli tók formlega til starfa með opnunarhátíð í Ketilhúsinu á Akureyri í gær. Skólinn, sem á ensku nefnist The School for Renewable Energy Science, er afrakstur fjögurra ára undirbúningsferlis og verður alþjóðleg einkarekin mennta- og vísindastofnun á sviði endurnýjanlegra orkugjafa og verður meginverkefni skólans að bjóða eins árs alþjóðlegt meistaranám í vistvænni orkunýtingu. Nemendur verða flestir erlendir og er fyrsti nemendahópur skólans væntanlegur til Akureyrar eftir um fjórar vikur. MYNDATEXTI: Fullir orku - Doktor Björn Gunnarsson, akademískur forstöðumaður skólans, kynnti væntanlega starfsemi skólans ítarlega á hátíðarsamkomunni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar