Goshver á bílastæði

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Goshver á bílastæði

Kaupa Í körfu

LISTAHÁTÍÐ í Reykjavík hófst í gær í 21. sinn. Eins og fram hefur komið er hátíðin nú sú umfangsmesta frá upphafi. Á Listahátíð mætir listmenning okkar því sem nýjast og frambærilegast þykir í listmenningu annarra þjóða og okkar fólk fær kjörið tækifæri til að bera sig saman við bestu listamenn annars staðar. Stemningin og lífið í kringum hátíðina setur sinn brag á borgina, ekki síst þegar okkur er skyndilega vippað úr hversdeginum og komið í opna skjöldu á förnum vegi, með óvæntum furðum og fyrirbærum, eins og kraumandi goshver á Ingólfstorgi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar