Veiðimyndir

Einar Falur Ingólfsson

Veiðimyndir

Kaupa Í körfu

Ágætis bleikjuveiði hefur verið í Hlíðarvatni í Selvogi síðustu daga. Ekkert mok en veiðimenn hafa verið að ná allnokkrum fiskum yfir daginn. Bleikjurnar eru vel haldnar og vænni fiskar hafa verið færðir til bókar þetta vorið en oft áður. Í veiðibók Ármanna var ein 60 cm bleikja og allnokkrar rétt undir 50 cm. Blaðamaður og félagar hans veiddu ágætlega í vikunni. Þegar lygndi og sólin skein á vatnið tók yfirborðið að krauma; fluga tók að klekjast út og silungarnir leituðu í agnið. MYNDATEXTI: Vænn fiskur - Birgir Snæbjörn Birgisson landar bleikju við Austurneshólma í Hlíðarvatni. Ágæt veiði hefur verið í vatninu í vor.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar