Mála bæinn rauðan

Jón Sigurðsson

Mála bæinn rauðan

Kaupa Í körfu

Blönduós | Málararnir Kristján Pétursson og Jón Jóhannsson voru í óða önn að tjarga Hillebrandtshúsið á Blönduósi einn ágætan sólskinsdag fyrir skömmu. Þetta ágæta hús sem mun vera eitt elsta timburhús landsins mun hýsa hafíssetur í sumar líkt og í fyrrasumar. Jóna Fanney Friðriksdóttir bæjarstjóri sagði fyrirhugað að opna safnið 9. júní og mun það verða opið dag hvern í allt sumar. Ísbjörninn sem setti mikinn svip á safnið fór suður til síns heima í haust en er væntanlegur aftur allra næstu daga, að sögn bæjarstjórans. Erla Gunnarsdóttir hefur verið ráðin til að hafa umsjón með Hafíssetrinu og uppbyggingu þess í sumar en hún er að ljúka námi í ferðamálafræði.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar