Veiðimyndir

Einar Falur Ingólfsson

Veiðimyndir

Kaupa Í körfu

TÆPLEGA tuttugu punda urriði veiddist í Þingvallavatni í fyrrakvöld. Fullorðinn veiðimaður fangaði fiskinn við Arnarfell. Blaðamaður sem var við veiðar um kvöldið fyrir landi þjóðgarðsins hitti tvo veiðimenn, sem höfðu fyrr um kvöldið aðstoðað þann sem veiddi stórurriðann við að vega hann og mæla. Reyndist fiskurinn 87 cm langur og 19 og hálft pund. Áttu sjónarvottarnir varla orð til að lýsa mikilfengleik fisksins. MYNDATEXTI Farin að taka Sigurður Steindórsson með fjórar vænar bleikjur við Öfugsnáða á Þingvöllum í fyrrakvöld. Nokkurt kropp hefur verið kvölds og morgna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar