Nýhil verslun opnar

Nýhil verslun opnar

Kaupa Í körfu

FJÖLMARGIR ljóðaunnendur og aðrir bókmenntaáhugamenn fögnuðu nýrri búð sem jaðarforlagið Nýhil opnaði á laugardaginn á Laugavegi 59, í kjallara Kjörgarðs, inn af plötuverslun Smekkleysu. Forlagið fagnaði þá einnig fimm ljóðabókum frá jafn mörgum nýhilistum: Ónefnd bók eftir Þórdísi Björnsdóttur, Eðalog eftir Val Brynjar Antonsson, Húðlit auðnin eftir Kristínu Eiríksdóttur, Litli kall strikes again eftir Steinar Braga og Roði eftir Ófeig Sigurðsson. MYNDATEXTI Ljóðskáldin Guttesen og Birgitta Jónsdóttir voru mætt til að fagna nýju bókabúðinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar