Selur

Andrés Skúlason

Selur

Kaupa Í körfu

Djúpivogur | Í eyjunni Brimilsnesi í Álftafirði eystri er þekkt selalátur, á eiðinu á sunnanverðri eyjunni. Í seinni hluta maímánaðar safnast þar saman tugir sela og ber þessi fallega eyja því nafn með rentu. Þar lágu kópar í tugatali fyrr í vikunni. Urturnar renndu sér hver á fætur annarri í sjóinn þegar ljósmyndari nálgaðist og þeir kópar sem burði höfðu til dönsuðu á eftir með miklum bægslagangi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar