Kajakkeppni sem byrjaði í Hvammsvík

Brynjar Gauti

Kajakkeppni sem byrjaði í Hvammsvík

Kaupa Í körfu

SJÓKAJAKRÆÐARARNIR sem kepptu í hinu árlega Hvammsvíkurmaraþoni í gær létu ekki hvassvirði á sig fá en keppt var í 40 km löngum róðri milli Geldinganess og Hvammsvíkur. Brugðið var á það ráð að ræsa í Hvammsvík til að fá hagstæðari vindátt en venjan er að hefja leik í Geldinganesi. Um var að ræða fjórða og síðasta mótið í mótaröð ársins hjá Kajakklúbbi Reykjavíkur og var Íslandsmeistari í karla- og kvennaflokki krýndur í gærkvöldi en ekki var ljóst hverjir hrepptu þann titil þegar blaðið fór í prentun.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar