Víkingur R. - Fylkir 0:1

Árni Torfason

Víkingur R. - Fylkir 0:1

Kaupa Í körfu

FYLKISMENN skutust upp í þriðja sætið í Landsbankadeildinni í gærkvöldi þegar þeir lögðu Víkinga í Víkinni með marki Vals Fannars Gíslasonar. Litlu munaði að dramatískur endir yrði á leiknum því þegar vallarklukkan sýndi 94 mínútur tók Gunnar Kristjánsson, nýbakaður landsliðsmaður Víkinga, aukaspyrnu og sendi boltann í utanverða stöngina og þar með var draumurinn búinn. Fylkismenn skelltu sér þar með í þriðja sætið upp fyrir Víkinga. MYNDATEXTI: Táin - Jökull Elísabetarson átti ágæta spretti fyrir Víkinga í gær og hér er hann með knöttinn á tánum í baráttu við Halldór Hilmisson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar