Cannes 2007

Halldór Kolbeins

Cannes 2007

Kaupa Í körfu

Það væri fróðlegt að fá upplýsingar um hvað margar kvikmyndir eru sýndar hér á hátíðinni í ár, bæði í tengslum við keppnina og á sölusýningum um allan bæ. Fyrir þá sem ekki ná að svala kvikmyndaþörfinni nóg með bíósetu frá morgni til kvölds er jafnframt boðið upp á fleiri kosti. Á hverju kvöldi eru hér sýndar eldri bíómyndir á risastórum skjá niðri á strönd. Hægt er að láta fara vel um sig í strandstólum, stinga tásunum í volgan sandinn og njóta þess sem fyrir augu ber. Gulum sendiferðabíl er svo lagt við strandgötuna á hverju kvöldi. Eigandinn opnar bílinn að aftanverðu og þar blasir við lítið bíótjald. Áhugasamir geta svo tyllt sér í hvíta plaststóla og horft á myndir úr öllum áttum. MYNDATEXTI Vinsælir foreldrar Angelina Jolie og Brad Pitt hafa haft í nógu að snúast.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar