Hvítasunnuumferð

Sverrir Vilhelmsson

Hvítasunnuumferð

Kaupa Í körfu

LÖGREGLAN hafði búið sig undir aukna löggæslu vegna vaxandi umferðar nú um hvítasunnuna og var hún töluverð á Snæfellsnesi og í Húnavatnssýslum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fylgist með umferð á Vestur- og Suðurlandsvegi. Leið fólks lá m.a. að Kirkjubæjarklaustri á torfæruhjólamót og einnig var straumur fólks á vorhátíð undir Snæfellsjökli og sjókajakmót í Stykkishólmi að sögn lögreglunnar á Snæfellsnesi. Lögreglan á Hvolsvelli verður með aukið eftirlit vegna bifhjólamótsins og einnig er torfærumót í Eyjafirði.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar