Ole Vagner

Eyþór Árnason

Ole Vagner

Kaupa Í körfu

BAUGUR Group hefur gert samkomulag við danska kaupsýslumanninn Ole Vagner um kauprétt á 11,2% hlut hans í danska fasteignafélaginu Nordicom, fyrir átti Baugur 11% og fer því með rúmlega 22% hlut. Baugur hefur einnig aukið hlut sinn í danska fasteignafélaginu Keops úr 29% í 32% en í vikunni keypti Pálmi Haraldsson 32% hlut í Keops af Ole Vagner. Saman fara Íslendingarnir því með um 64% í Keops. Fréttavefurinn Børsen segir að samkomulag Baugs við Vagner felist í að eignarhaldsfélag hans, Hovedstadens Entrepriseselskab, þar sem hluturinn í Nordicom liggur, muni greiða atkvæði í samræmi við vilja Baugs á aðalfundum félagsins. Gengi bréfa Nordicom hækkaði um 5,2% í dönsku kauphöllinni í gær

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar