Bátasmiðir

Ragnar Axelsson

Bátasmiðir

Kaupa Í körfu

Örlygur, einsigldur árabátur sem er nákvæm eftirmynd landhelgisbátsins Ingjalds, verður sjósettur í Reykjavíkurhöfn á Hátíð hafsins á morgun. Báturinn er fjögurra manna far í minna lagi og hægt að sigla honum með fokku og gaffalsegli. Fyrirmynd Örlygs er nú á Þjóðminjasafninu. Örlygur var smíðaður fyrir Minjasafn Egils Ólafssonar að Hnjóti í Örlygshöfn. Báturinn er nefndur eftir landnámsmanninum Örlygi gamla Hrappssyni sem Örlygshöfn er kennd við. Þangað verður báturinn fluttur og þar verður hann til sýnis. MYNDATEXTI: Bátasmiðir - Agnar Jónsson skipasmíðameistari smíðaði bátinn og Ísleifur Friðriksson stálskipasmíðameistari annaðist járnsmíðina.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar