Bátasmiðir

Ragnar Axelsson

Bátasmiðir

Kaupa Í körfu

Örlygur, einsigldur árabátur sem er nákvæm eftirmynd landhelgisbátsins Ingjalds, verður sjósettur í Reykjavíkurhöfn á Hátíð hafsins á morgun. Báturinn er fjögurra manna far í minna lagi og hægt að sigla honum með fokku og gaffalsegli. Fyrirmynd Örlygs er nú á Þjóðminjasafninu. Örlygur var smíðaður fyrir Minjasafn Egils Ólafssonar að Hnjóti í Örlygshöfn. Báturinn er nefndur eftir landnámsmanninum Örlygi gamla Hrappssyni sem Örlygshöfn er kennd við. Þangað verður báturinn fluttur og þar verður hann til sýnis. MYNDATEXTI: Eldsmíði - Allir járnhlutir í landhelgisbátinn voru eldsmíðaðir og við smíðina notaði Ísleifur físibelg sem hann smíðaði eftir einum slíkum sem grafinn var upp á Keldum á Rangárvöllum. Síðan var físibelgurinn skreyttur með útskurði.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar