Sigurður Gunnsteinsson

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Sigurður Gunnsteinsson

Kaupa Í körfu

SIGURÐUR Gunnsteinsson fékk í vikunni afhent skjal frá heilbrigðisráðuneytinu sem staðfestir að hann er löggiltur áfengis- og vímuefnaráðgjafi og varð hann þar með fyrstur til að hljóta slíka löggildingu. Innan tíðar mun heilbrigðisráðuneytið væntanlega staðfesta löggildingu 15 annarra ráðgjafa. Samkvæmt reglugerð sem sett var í lok síðasta árs mega eingöngu þeir sem hafa fengið til þess leyfi hjá heilbrigðisráðuneytinu kalla sig áfengis- og vímuefnaráðgjafa. MYNDATEXTI: Reyndur Sigurður Gunnsteinsson hefur verið áfengisráðgjafi frá 1978 en varð löggiltur í fyrradag.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar