Kvennahlaupið

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Kvennahlaupið

Kaupa Í körfu

Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir hjá ÍSÍ og Vilmundur Guðnason forstöðulæknir Hjartaverndar undirrituðu á föstudag samstarfssamning um kvennahlaupið og sögðust bæði stolt og ánægð með samstarfið. Markmið þess er að vekja athygli á konum og kransæðasjúkdómum. Ingibjörg og Vilmundur féllust í faðma eftir að hafa undirritað samninginn og sögðust fullviss um að samstarfið yrði hreinlega yndislegt. MYNDATEXTI: Glöð í bragði - Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir og Vilmundur Guðnason undirrituðu samninginn um framkvæmd Kvennahlaups ÍSÍ.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar