Reykjavíkurmaraþon

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Reykjavíkurmaraþon

Kaupa Í körfu

"ÞAÐ vitum við öll sem erum hér inni að gott orðspor er verðmætasta landkynningin, og hér hefur vel tekist til," sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri í gær þegar tilkynnt var að skráning í Reykjavíkurmaraþonið, sem fram fer í ágúst, væri hafin. Hann kvaðst afar ánægður með það hvernig staðið hefði verið að hlaupinu á undanförnum árum og lofaði að klára sjálfur skemmtiskokkið. MYNDATEXTI: Allir sigra! - Borgarstjóri og forstöðumenn Reykjavíkurmaraþons, ásamt fjórum viðskiptavinum bankans sem hyggjast hlaupa tæplega 100 kílómetra samanlagt til styrktar góðum málefnum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar