Sundlaug Seltjarnarness

Jim Smart

Sundlaug Seltjarnarness

Kaupa Í körfu

ELDUR er bestur með ýta sonum og sólarsýn, segir í fornum spakmælum og víst er að létt hefur verið yfir mörgum bæði í geði og klæðaburði í blíðviðrinu sem verið hefur víða um land undanfarna daga. Margir hafa notað tækifærið og brugðið sér í sundlaugarnar líkt og þessar yngismeyjur sem sóluðu sig í sundlaug Seltjarnarness. Gert er ráð fyrir hæglætisveðri um allt land fram yfir helgina en stöku skúrir gætu þó fallið sunnan- og vestanlands á morgun en annars verður ríkjandi bjartviðri og hlýindi, einkum inn til landsins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar